Hraunfljótið ógnar íbúum 16. desember 2009 00:30 Hraunkvikan glóir Mannlífið í borginni Legazpi markast af nærveru við virkasta eldfjall Filippseyja.nordicphotos/afp
Mayon er virkasta eldfjallið á Filippseyjum. Fyrir fjórum árum þurftu þrjátíu þúsund manns að flýja að heiman þegar eldgos hófst í fjallinu. Annað eldgos árið 1993 kostaði 79 manns lífið. Í gær þurftu tuttugu þúsund manns að flýja að heiman eftir að miklar öskusprengingar urðu í fjallinu á mánudagskvöld. Fljótandi hraunkvika fór síðan að streyma úr fjallinu í fyrrinótt og glóði á hana í myrkrinu. Í næsta nágrenni fjallsins búa alls 50 þúsund manns, og þeir eru vanir því að þurfa að flýja þegar fjallið rumskar. Þeir eru fluttir með herbílum til bæja og þorpa í nægilega mikilli fjarlægð, þar sem þeir fá inni í skólum og öðru bráðabirgðahúsnæði. „Þetta er erfitt, sérstaklega fyrir börnin,“ segir Jukes Nunez, framkvæmdastjóri almannavarna í héraðinu, sem heitir Albay. „Það eru tíu dagar til jóla. Líklega mun fólkið dveljast í neyðarskýlum. Ef ekkert dregur úr virkninni í Mayon getum við ekki leyft þeim að snúa heim.“ Sum þorpin voru reyndar tæmd strax í síðasta mánuði þegar fjallið byrjaði að spúa ösku. Lífið hélt þó áfram sinn vanagang í mörgum afskekktustu þorpunum næst fjallinu. „Við erum tilbúin, en ekki beint hrædd,“ sagði Romeo Opiana, 66 ára þorpsleiðtogi í Maninila. Þar búa 249 manns, sem hafa pakkað fötum og helstu nauðsynjum niður í töskur, en bíða átekta. Herflutningabíll er til reiðu ef ástandið versnar. Stjórnvöld eru staðráðin í að eldsumbrotin í fjallinu kosti engin mannslíf í þetta skiptið. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Gosmóðan liggur þétt yfir höfuðborgarsvæðinu og viðkvæmir hvattir til að vara sig Innlent „Langstærstu vandamálin eru þessir stærri og skipulögðu þjófnaðir“ Innlent Ísraelar stunda skipulagt niðurrif á heilu bæjunum í trássi við alþjóðalög Erlent „Lít niður á alla þessa dópista sem mér er meint að hafa selt vopn“ Innlent „Umsókn Íslands að Evrópusambandinu hefur aldrei verið formlega dregin til baka“ Innlent 135 þúsund kjúklingar á Ásmundarstöðum í Ásahreppi Innlent Selenskí boðar til nýrra friðarviðræðna Erlent Hnífstunga á Austurvelli Innlent Bóndinn á bænum kom slökkviliðsmönnum til hjálpar Innlent Á fjórða tug ferðamanna látnir eftir að bát hvolfdi Erlent Fleiri fréttir Ísraelar stunda skipulagt niðurrif á heilu bæjunum í trássi við alþjóðalög Selenskí boðar til nýrra friðarviðræðna Á fjórða tug ferðamanna látnir eftir að bát hvolfdi Tæplega þrjátíu slasaðir eftir að bíl var ekið í mannfjölda í Hollywood Ísrael og Sýrland hafi samið um vopnahlé Óska eftir því að vitnisburður um Epstein verði opinberaður Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Metallica kom Tomorrowland til bjargar eftir brunann Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Skotinn til bana þegar hann söng Linkin Park á karókíkvöldi Bretar hyggjast lækka kosningaaldur í sextán ár Að minnsta kosti 25 börn seld frá Indónesíu til Singapúr Þjónkun við Trump?: CBS leggur niður Late Show „Til hamingju með afmælið... og megi allir dagar vera annað dásamlegt leyndarmál“ Ofurhugi lést eftir brotlendingu í svifvængjaflugi Donald Trump greindur með langvinna bláæðabólgu Saksóknari í Epstein-málinu látinn taka pokann sinn Borgarstjóri Istanbúl í tuttugu mánaða fangelsi Tugir látnir eftir eldsvoða í verslunarmiðstöð Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Ísrael sprengir í Sýrlandi: Þrír látnir og tugir særðir Fimm glæpamenn fluttir frá Bandaríkjunum til Esvatíní Handtekin fyrir að stunda kynlíf með munkum og kúga af þeim fé Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Pútín lætur sér fátt um finnast Ekkja Navalní mótmælir tónleikum „náins vinar“ Pútín Sjá meira