Erlent

Langaði að löðrunga þjóðernissinna

Nick Griffin
Nick Griffin

Nick Griffin flokksleiðtogi breskra þjóðernissinna er að gera allt vitlaust í heimalandi sínu. Fjölmenn, ofbeldisfull mótmæli voru fyrir utan höfuðstöðvar breska ríkisútvarpsins í gær þar sem fór fram upptaka af spjallþættinum, Questino Time. Nick var gestur í þættinum en hann er afar umdeildur fyrir skoðanir sínar. Hann hefur meðal annars sterkar skoðanir á svörtu fólki.

Í þættinum í gær var einn af viðmælendum þáttarins Bonnie Greer, sem er einmitt svört, hún var í umræðum með Griffin og fleirum.

Í The Sun í dag segist hún mest hafa viljað löðrunga þjóðernissinnann þar sem hann sat á móti henni og viðraði skoðanir sínar.

Mjög skiptar skoðanir eru um hvort Nick hefði í raun átt að fá að taka þátt í umræðunum. Hann nýtur lítils stuðnings og hefur umdeildar skoðanir.

„Á einum tímapunkti þurfti ég að halda aftur af mér frá því að löðrunga hann. En það var þess virði vegna þess að hann var gersigraður þarna í gær," sagðir Greer í samtali við The Sun.

Í þættinum var birt skoðanakönnun þar sem flokkur Griffin fékk vægast sagt skelfilega útreið hjá Bresku þjóðinni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×