Obama vongóður um heilbrigðislög 17. desember 2009 00:15 Barack Obama Takist honum að koma heilbrigðisfrumvarpinu í gegnum þingið yrði það einn stærsti sigur hans.fréttablaðið/AP
Barack Obama Bandaríkjaforseti segir demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings komna á fremsta hlunn með að samþykkja nýja heilbrigðislöggjöf. Þetta sagði hann eftir að hafa rætt við flokkssystkini sín í Demókrataflokknum á þriðjudag. Hann sagði enn vera ágreining um ýmis atriði í frumvarpinu, en leiðtogar flokksins vonist samt til að það verði afgreitt fyrir jól. „Endanleg útgáfa frumvarpsins mun ekki innihalda allt sem allir vilja. Ekkert frumvarp getur það,“ sagði Obama. Ágreiningsmálin snúast meðal annars um fóstureyðingar og heilsugæslu aldraðra. Joe Lieberman, óháður þingmaður sem oftast hefur greitt atkvæði samhljóða demókrötum, segist vera andvígur þeim breytingum sem ætlunin er að gera á Medicare-kerfinu, sem lýtur að heilsugæslu aldraðra. Hann hótar að ganga til liðs við repúblikana og greiða atkvæði gegn heildarfrumvarpinu ef ákvæðin um Medicare verða ekki tekin út. Hins vegar er hann sáttur við frumvarpið að öðru leyti. Leiðtogar demókrata hafa áratugum saman reynt að ná fram breytingum á heilbrigðislöggjöf Bandaríkjanna til að tryggja öllum íbúum landsins sjúkratryggingar. Málið er eitt það stærsta, sem Obama hafði á stefnuskrá sinni og teldist verulegur sigur ef honum tekst að koma því í gegnum þingið. Með frumvarpinu er tryggt að þrjátíu milljónir Bandaríkjamanna, sem hafa verið án sjúkratrygginga, njóti framvegis trygginga. Til þess að frumvarpið verði samþykkt þurfa demókratar að tryggja sér sextíu atkvæði í öldungadeildinni, þar sem 100 þingmenn eiga sæti. Greiði Lieberman atkvæði með frumvarpinu er aðeins óvissa um einn demókrata, Ben Nelson, sem reynt hefur að fá í gegn takmarkanir á heimildum ríkisins til þess að greiða fyrir kostnað við fóstureyðingar. Í fulltrúadeildinni var frumvarpið samþykkt án heimildar til að greiða fyrir fóstureyðingar, en leiðtogar demókrata í öldungadeildinni hafa lagt áherslu á að slík heimild verði með. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Erlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Níu ferðamenn á ísnum og heil rúta í viðbót á leiðinni Innlent Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Innlent Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Innlent Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Innlent „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Innlent Fleiri fréttir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Sjá meira