Erlent

Fimm Bandaríkjamenn handteknir í Írak

Lögreglan í Írak handtók í dag fimm Bandaríkjamenn sem grunaðir eru um að hafa myrt samlanda sinn fyrir hálfum mánuði. Írakar segja að mennirnir séu málaliðar en það hefur ekki verið staðfest af sendiráði Bandríkjanna í Írak.

Jim Kitterman, eigandi byggingafyrirtækis, fannst stunginn og bundinn á höndum og fótum 22. maí í Bagdad. Fyrirtæki hans hafði unnið að ýmsum verkefnum fyrir bandaríska herinn og írösk stjórnvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×