Erlent

Júlía gefur kost á sér

Júlía Tímósjenkó, forsætisráðherra Úkraínu, ætlar að gefa kost á sér í forsetakosningunum þar í landi á næsta ári.

Júlía var einn af leiðtogum appelsínugulu byltingarinnar í Úkraínu árið 2004. Í kjölfarið lét Viktor Janúkovitsj af embætti forseta. Hann hyggst gefa kost á sér í kosningunum að ári.

Eftir byltinguna fyrir fimm árum var Viktor Júsjenko kjörinn forseti og Júlía tók við embætti forsætisráðherra. Síðar kastaðist í kekki milli þeirra og sagði hún af sér. Hún tók við sem forsætisráðherra á nýjan leik í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×