Innlent

Ólöf segir Ólaf fara með fleipur

Ólöf Guðný með Ólafi F. Magnússyni á meðan hún var aðstoðarmaður hans.
Ólöf Guðný með Ólafi F. Magnússyni á meðan hún var aðstoðarmaður hans.

Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, fyrrverandi aðstoðarmaður Ólafs F Magnússonar borgarstjóra og fráfarandi varaformaður skipulagsráðs borgarinnar, segir borgarstjóra fara með fleipur og hafa dregið umræðuna niður á plan sem ekki sé embættinu sæmandi. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins.

Ólafur hefur sagt að það hafi legið fyrir í nokkurn tíma að Ólöf Guðný hafi ekki viljaðhafa samráð við borgarstjórnarflokk F-lista og borgarstjóra í skipulagsmálum. Ólöf Guðný hafi því sjálf tekið skref út úr skipulagsráði borgarinnar.

Ólafur hefur sakað Ólöfu Guðnýju um alvarlegt trúnaðarbrot þegar hún hafi vitnað til einkasamtala þeirra í fjölmiðlum sem fram fóru meðan Ólöf var aðstoðarmaður borgarstjóra.

Ólöf Guðný sagði á Rúv hafa unnið af trúmennsku fyrir borgarstjóra í skipulagsráði. Ólafur hafi lagt hart að henni að starfa þar áfram eftir að hann sagði henni upp störfum sem aðstoðamaður. Ólöf Guðný segir það ekki rétt að hún hafi ekki viljað starfa fyrir borgastjóra í skipulagsráði.

Í Kastljósi í gær sagði Ólafur að hann viki Ólöfu úr ráðinu þar sem hún hafi ekki viljað starfa með honum lengur né í þágu málefnasamnings meirihlutans. Ólöf Guðný segir að þetta sé rangt.

,,Ef ég væri að vinna á móti stefnu meirihlutans eða gæta einhverja eiginhagsmuna þar inni þá er ég nú ansi hrædd um að formaður skipulagsráðs vera fljótur að stoppa mig," segir Ólöf Guðný og bætir við að hún hafi hvorki fengið athugasemdir frá Ólafi né öðrum um störf sín í skipulagsráði.






Tengdar fréttir

Þórhallur: Ekki komið aftan að Ólafi með neinum hætti

Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kastljóssins, telur að Helgi Seljan hafi hvorki verið dónalegur né of aðgangsharður þegar hann tók viðtal við Ólaf F. Magnússon, borgarstjóra, í Kastljósinu í gærkvöldi.

Össur segir Hönnu Birnu vera ístöðulausa gagnvart Ólafi

Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, er ístöðulaus gagnvart Ólafi F. Magnússyni, borgarstjóra, að mati Össurar Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra. Hann segir Hönnu Birnu ekki hafa náð neinum árangri við að lyfta upp fylgi flokksins í Reykjavík. Þetta kemur fram á vefsíðu iðnaðarráðherra.

Ólöf Guðný rekin úr skipulagsráði

Ólöf Guðný Valdimarsdóttir mun að öllum líkindum víkja úr skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Hún sagði við Vísi í morgun að Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hafi haft samband við hana í gær og hann hafi tilkynnt henni að hann myndi tilnefna nýjan fulltrúa hennar á næsta fundi borgarráðs. Borgarráð muni svo kjósa um málið.

Gerræðisleg vinnubrögð borgarstjóra

Ákvörðun Ólafs F. Magnússonar, borgarstjóra, að víkja varaformanni skipulagsráðs úr ráðinu ber vott um hótanir og gerræðisleg vinnubrögð að mati oddvita minnihlutans. Oddviti Vinstri-grænna segir borgarstjórann einangraðan.

Dagur: Skil ekki Ólaf frekar en margir aðrir

Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, er ómyrkur í máli í viðtali við 24 stundir í dag og fer ekki fögrum orðum um Dag og aðra helstu leiðtoga Samfylkingarinnar. Talar Ólafur jafnframt um að deilan sem nú rísi um skipulagsmál sýni hvers vegna síðasti borgarstjórnarmeirihluti sprakk. Dagur vísar þessum ummælum til föðurhúsanna.

Játar að vera já-maður Ólafs

Magnús Skúlason arkitekt, sem Ólafur F. Magnússon hyggst skipa í skipulagsráð borgarstjórnar í stað Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur, játar því að ein ástæða þess að Ólafur vilji hann inn í skipulagsráð sé til að hafa eigin já-mann innan ráðsins.

Hefur ekki skoðun á mannabreytingum Ólafs

Hanna Birna Kristjánsdóttir formaður skipulagsráðs segist ekki hafa skoðun á mannaskiptum F-lista í ráðinu. Þær séu alfarið á ábyrgð Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra sem taki ákvörðanir þess efnis fyrir hönd síns fólks.

Tjáir sig ekki um málefni Ólafar Guðnýjar

Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, tjáir sig ekki á þessari stundu um ástæður þess að Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, varaformaður skipulagsráðs, víkur úr ráðinu.

Tillagan um LHÍ ekki samþykkt í óbreyttri mynd

Borgarstjóri segir tillögu um nýjan Listaháskóla Íslands í miðborg Reykjavíkur ekki verða samþykkta í skipulagsráði borgarinnar í óbreyttri mynd. Aðstandendur skólans segja að fullt tillit hafi verið tekið til sjónarmiða skipulagsyfirvald við gerð tillögunnar og að þeir treysti því að tillagan fái málefnalega umfjöllun í ráðinu.

Listaháskólinn verður í miðbænum

Borgarstjóri vill að Listaháskólinn verði í miðbænum og komist verði að samkomulagi varðandi uppbyggingu hans á Laugaveginum til að vernda götumyndina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×