Allt logar í Danmörku 16. febrúar 2008 18:47
Í gærkvöldi og nótt loguðu eldar í fleiri dönskum bæjum en áður, meðal annars í Kaupmannahöfn, Árósum og Óðinsvéum. Reið ungmenni kveiktu í ruslagámum, bílum og skólum. Ástæðurnar eru sagðar vera endurbirtingar Múhameðsteikningar, langvarandi reiði innflytjendahópa og brottvísanir tveggja Túnisa sem eru grunaðir um skipulagningu morðs á teiknara Jótlandspóstsins. Birthe Rønn Hornbeck, innflytjendaráðherra, er sögð vera óhæf í málinu, þar sem hún hefur opinberlega sagt að hún hafi aldrei verið hrifin af lagabókstafnum að baki brottvísunum án réttarhalds. „Mikið hefur verið rætt um það hér í Danmörku undanfarna daga hvort þessi útlendingalöggjöf standist í raun mannréttindi - það er að segja, má vísa fólki úr landi án þess að segja því af hverju? Biskupinn í Árósum telur svo ekki vera." „Eftir 2001 var allur heimurinn haldin ofsahræðslu, og Danmörk að sjálfsögðu líka. Þá voru samþykkt hryðjuverkalög sem ætti að vera búið að endurskoða. Menn ættu að viðurkenna að þetta var gert í óðagoti," segir Kjeld Holm biskup í Árósum. „Það er þvert gegn minni réttlætiskennd. Þetta er algjörlega óskiljanlegt. Eins og teiknarinn sjálfur segir, þá er hann dauðhræddur um að hann hitti einn þeirra grunuðu sem nú gengur laus," segir Kjeld Holm þegar hann er spurður um álit sitt á því að sá sem kveikir í ruslagámi sé leiddur fyrir dómara en ekki sá sem er grunaður um morð á teiknara?
Mest lesið Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Innlent Uppgjör í undirheimunum undir Höfðatorgi Innlent Mun kæra áburð um barnaperraskap til lögreglu Innlent Malbiksskemmdir gríðarlegar þetta árið Innlent Áttu að meta hvort þrettán ára væri nógu þroskuð til að veita samþykki Innlent Hundrað ár frá því útvarpið varð að veruleika á Íslandi Innlent Kerfið sem átti að bjarga syni hans hafi drepið hann Innlent Ísland.is ekki fullnægjandi sem þjónustuvefur Innlent Tilraun til manndráps í bílakjallara í Borgartúni Innlent Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Erlent Fleiri fréttir Olíuvinnslur rýmdar eftir árásir á eitt stærsta gassvæði heims Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Säpo varar við aukinni ógn frá Rússlandi Krefjast rúmlega sjö ára fangelsis yfir glæpaprinsinum Felldu enn einn ráðherrann: Reyna að ryðja leiðina fyrir Írani en gætu eflt herinn Tillögu um lögleiðingu dánaraðstoðar hafnað í Skotlandi Skárri staða í Álasundi Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Segir ekkert hérað Rússlands öruggt lengur „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Sjá meira