Erlent

Samgöngur að komast á í Kína að nýju

Vetrarveðrinu í suðurhluta Kína slotaði aðeins um helgina og samgöngur hafa komist á.

Eitthvað af lestum þar gengur og margir flugvellir hafa verið opnaðir. Enn eru samt milljónir manna strandaglópar á svæðinu vegna veðurofsans sem er sá versti í 50 ár.

Herinn hefur verið kallaður út til að aðstoða þá sem komast hvorki lönd né strönd. Fram undan er stærsta ferðavika ársins í Kína en þjóðin fagnar nýju ári á fimmtudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×