Erlent

Sakamenn bíða rafrænna fangavarða

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Danskir sakamenn bíða nú í löngum röðum eftir að fá rafræn armbönd sem gera það að verkum að þeir geta afplánað hluta dóms síns utan fangelsismúranna en yfirvaldið veit með hjálp armbandsins nákvæmlega hvar viðkomandi er staddur.

Þessi nýstárlega afplánunaraðferð nýtur orðið feiknarlegra vinsælda um alla Danmörku og eru umsóknirnar nú orðnar mun fleiri en yfirvöld geta annað. Aðstoðarfangelsismálastjóri Danmerkur segir að nú gangi 160 manns með fangaarmband af þessu tagi en gert sé ráð fyrir mikilli fjölgun þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×