Erlent

Fótur fjarlægður úr heila nýbura

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Drengurinn, Sam Esquibel, eftir aðgerðina.
Drengurinn, Sam Esquibel, eftir aðgerðina. MYND/AP/Christian Murdock

Örsmár fótur og nokkrir aðrir líkamshlutar voru fjarlægðir úr heila nýfædds drengs með skurðaðgerð á sjúkrahúsi í Colorado Springs í Bandaríkjunum. Sneiðmyndataka af höfði drengsins leiddi í ljós eitthvað sem líktist æxli í heilanum og þegar barnataugaskurðlæknirinn Paul Grabb gerði á honum aðgerð komu líkamshlutarnir í ljós.

Grabb segir það ákaflega sjaldgæft að tilvik sem þetta eigi sér stað en þarna geti verið um tvennt að ræða, heilaæxli sem taki á sig mynd líkamshluta eða mjög sjaldgæft fyrirbæri sem gengur undir fræðiheitinu „fetus in fetu" þar sem eins konar tvíburi vex að hluta inni í fóstri en nær ekki að þroskast nema að mjög litlu leyti.

Drengnum, sem nú er tveggja mánaða gamall, heilsast vel eftir aðgerðina en þarf að gangast undir blóðrannsókn mánaðarlega til að ganga úr skugga um að engar óeðlilegar frumubreytingar muni eiga sér stað.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×