Erlent

Hetja frönsku andspyrnunnar látin

Lucie Aubrac
Lucie Aubrac AFP
Ein hetja frönsku andspyrnunnar, Lucie Aubrac er látin 94 ára gömul. Aubrac varð fræg fyrir að aðstoða eiginmann sinn Raymond, sem var leiðtogi andspyrnuhreyfingarinnar og slapp úr þýsku fangelsi sumarið 1943. Aubracfjölskyldan flúði eftir það til London þaðan sem þau skipulögðu andspyrnu með útlagastjórn Charles de Gaulle. Tvær bíómyndir hafa verið gerðar um sögu Aubrac. Hún starfaði síðar sem sögu- og landafræðikennari.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×