Erlent

Vilja harðar aðgerðir gegn stjórnvöldum í Simbabve

Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar liggur höfuðkúpubrotinn á spítala
Morgan Tsvangirai, leiðtogi stjórnarandstöðunnar liggur höfuðkúpubrotinn á spítala AP

Vesturveldin kalla eftir frekari viðskiptaþvingunum gegn stjórnvöldum í Simbabve eftir að þau leystu upp friðsamlegan fjöldafund stjórnarandstöðunnar um síðustu helgi.

Bandarískir erindrekar hafa sagst vilja framlengja ferðabann og eignafrystingu og Bretar hvetja stjórnvöld í Evrópu til að ráðast í svipaðar aðgerðir.

Robert Mugabe forseti landsins hins vegar varar við því að hver sá sem reynir að steypa stjórnvöldum Simbabve af stóli þurfi að gjalda fyrir það dýru verði.

Eins og fram hefur komið voru leiðtogar stjórnarandstöðunnar beittir miklu harðræði í varðhaldi eftir að þeir voru handteknir um helgina og leiðtogi stjórnarandstæðinga, Morgan Tsvangirai liggur höfuðkúpubrotinn á spítala eftir aðfarir lögreglumanna.

Tsvangirai sagði í viðtali í gær að hann liti svo á að barsmíðar lögreglunnar væru ekkert annað en hvatning til stjórnarandstöðunnar að hamast sem aldrei fyrr á stjórnvöldum. Þá sagði hann barsmíðarnar greinilega hafa miðað að því að valda honum eins miklum skaða og mögulegt var.

Stjórn Mugabe hefur vísað ásökunum Tsvangirai á bug og segir hann hafa meiðst þegar stjórnarandstæðingar réðust á lögreglumenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×