Erlent

Þingflokkurinn andmælir Blair

Mótmæli Fyrir utan bústað Blairs að Downingsstræti 10.
Mótmæli Fyrir utan bústað Blairs að Downingsstræti 10. MYYND/AP

Fjölmargir þingmenn breska Verkamannaflokksins gerðu uppreisn gegn formanni sínum, Tony Blair forsætisráðherra, vegna áforma hans um nýjar kjarnorkuflaugavarnir. Gagnrýnendur segja áformin grafa undan kröfum um að Íranar og fleiri þjóðir komi sér upp nýjum vopnum.

Blair lagði til að Bretar endurnýjuðu fjóra kafbáta sem búnir eru kjarnorkuvopnum en komnir eru til ára sinna. Blair telur nauðsynlegt að endurnýja kjarnorkuflotann til að verjast ógn frá hryðjuverkamönnum og ríkjum sem hlíta ekki alþjóðasamþykktum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×