Albert Ingason skrifar undir hjá Val 2. nóvember 2007 14:31 Albert Ingason skrifar undir þriggja ára samning hjá Val í dag.
Þetta er stærsti klúbburinn í dag„Það er bara allt spennandi við þennan klúbb. Þeir eru meistarar og svo er það evrópukeppninn, aðstæðan og bara allur pakkinn," segir Albert Brynjar Ingason knattspyrnumaður sem hefur leikið með Fylki nánast alla sína tíð.Albert skrifar í dag undir þriggja ára samning við Valsmenn.„Ég fór á fyrstu æfinguna mína hjá Val þegar ég var pínulítill. Síðan nennti mamma ekki að keyra mig þannig að ég fór bara í Fylki," segir Albert en hann hefur búið í Árbænum alla sína tíð.Albert er 21 árs og hefur leikið fjölda leikja með yngri landsliðum hann skoraði fimm mörk í sumar en var með brjósklos í byrjun tímabils og byrjaði því seint. „Ég spilað minn fyrsta leik á móti Val í seinni umferðinni, það var fínn seinni hálfleikur hjá okkur," segir Albert og hlær en Fylkir sigraði Val í þeim leik 4:2 eftir að hafa verið undir 2:1 í hálfleik.Albert er sonur Inga Björns Albertssonar sem lék með Valsmönnum í eina tíð. Var hann eitthvað að ýta á þig. „Nei alls ekki það eru aðallega þeir kostir sem ég nefndi áðan sem heilluðu mig. Valur er stærsti klúbburinn í dag."Albert er sóknarmaður og er því að berjast við Helga Sigurðsson og Guðmund Benediktsson um sæti í framlínu Valsmanna. „Það er bara undir mér komið hvort ég eigi eitthvað erindi þarna, en maður verður að hafa trú á þessu."Guðmundur Benediktsson er giftur systur Alberts og þeir eru því mágar. „Ég kannast því aðeins við Gumma," segir Albert og hlærAðspurður um hvort hann sé farinn að huga að atvinnumennsku segir Albert. „Maður verður bara að taka eitt skref í einu. Valur er spennandi klúbbur og ég hlakka til að spila með þeim."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Tottenham - Liverpool | Meistararnir mæta til leiks án Salah Enski boltinn Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Fleiri fréttir Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Sjá meira