Erlent

Dani á felgunni

Gunnar Valþórsson skrifar

Danskur ökumaður var handtekinn í nótt eftir að hafa keyrt á felgunni 15 kílómetra leið. Lögreglan hafði fengið tilkynningu um mann sem var að spóla á bílnum sínum, Ford Taunus, í bænum Vejle.

Þegar þeir komu á staðinn var bíllinn á bak og burt, en auvelt reynist að finna manninn, því afturdekkið hafði sprungið og maðurinn hafði ekið í burtu á felgunni sem skildi eftir sig far í malbikinu.

Þegar lögreglan dró manninn uppi eftir 15 kílómetra akstur hafði hann hins vegar sofnað undir stýri bifreiðarinnar á miðjum veginum, sjálfur á felgunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×