Enski boltinn

Við frjósum ekki á örlagastundu

NordicPhotos/GettyImages

Alex McLeish, landsliðsþjálfari Skota í knattspyrnu, lofar að hans menn muni ekki frjósa á ögurstundu þegar þeir taka á móti Ítölum á Hampden Park í Glasgow á morgun. Sigur í leiknum tryggir Skotum sæti á stórmóti í fyrsta skipti síðan á HM árið 1998.

"Það er mikil trú á verkefnið í öllum hópnum. Það getur vel verið að við náum ekki að vinna þennan leik en ég get sagt ykkur að leikmennirnir munu ekki láta pressuna yfirbuga sig - það er klárt mál. Við höfum þegar gengið í gegn um ýmislegt í þessum riðli og ég held að menn hafi rétta hugarfarið. Við erum ekki hræddir við að gera mistök," sagði McLeish á blaðamannafundi í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×