Chelsea valtaði yfir City 27. október 2007 15:55 Didier Drogba fagnar öðru marka sinna í dag NordicPhotos/GettyImages
Chelsea rótburstaði Manchester City 6-0 á Stamford Bridge í dag og Manchester United vann sannfærandi 4-1 sigur á Middlesbrough á Old Trafford. Chelsea vann þriðja sigur sinn í ensku úrvalsdeildinni með því að mala Manchester City 6-0. Leikurinn var eign heimamanna sem höfðu yfir 2-0 með mörkum frá Michael Essien og Didier Drogba. Drogba bætti við öðru marki sínu í síðari hálfleiknum og þar náðu þeir Joe Cole, Salomon Kalou og Andriy Shevchenko einnig að komast á blað. Manchester United átti ekki í teljandi vandræðum með Middlesbrough og vann 4-1 á heimavelli. Nani kom United yfir með frábæru skoti eftir aðeins þrjár mínútur en Jeremie Aliadiere jafnaði metin fyrir gestina skömmu síðar. Nani lagði svo upp annað mark United fyrir Wayne Rooney, en Rooney lagði upp glæsilegt þriðja mark liðsins fyrir Carlos Tevez í síðari hálfleik. Það var svo Tevez sem skoraði fjórða markið eftir að skot hans hrökk af varnarmanni og í netið og því er United á toppnum í deildinni - í það minnsta fram að leik Liverpool og Arsenal á morgun. Íslendingalið Reading vann dýrmætan heimasigur á Newcastle 2-1 þar sem varamaðurinn Shane Long skoraði sigurmark heimamanna undir lokin. Dave Kitson hafði áður komið Reading yfir í leiknum en varnarmaðurinn Michael Duberry skoraði sjálfsmark og jafnaði. Brynjar Björn Gunnarsson var í byrjunarliði Reading í dag en Ívar Ingimarsson sat á bekknum. Wigan og Sunderland gerðu 1-1 jafntefli í áhugaverðum leik þar sem Wigan var yfir lengst af eftir frábært mark Simon Davies úr aukaspyrnu. Sunderland missti Greg Halford af velli með rautt spjald eftir það - en það kom ekki í veg fyrir að Kenwayne Jones jafnaði metin á 86. mínútu. Sunderland hefði geta stolið sigrinum í lokin ef ekki hefði verið fyrir góða markvörslu Anthony Stokes í lokin. Birmingham lagði loks Wigan 3-2 í hörkuleik þar sem Oliver Kapo skoraði tvívegis fyrir heimamenn.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Sjá meira