Dreymir um að taka við Tottenham 26. október 2007 14:29 NordicPhotos/GettyImages
Juande Ramos lýsti því yfir í viðtali við spænska miðla í morgun að hann væri spenntur fyrir að taka við Tottenham. Forráðamenn Sevilla vilja ekkert segja um mögulega brottför þjálfarans til Englands, en leikmenn Sevilla hafa áhyggjur af ástandinu. Talsmaður Sevilla vildi lítið gefa upp um stöðu mála þegar Sky fréttastofan hafði samband við hann eftir hádegið. "Ramos er enn þjálfari Sevilla og félagið hefur ekki skipulagt neinar tilkynningar um annað í nánustu framtíð," sagði í yfirlýsingu frá félaginu. Spænskir og enskir miðlar fullyrða hinsvegar að verið sé að vinna í því að fá Ramos til að skrifa undir fjögurra ára samning við enska liðið. Talið er að það eina sem standi í vegi fyrir því að Ramos fari til Englands séu þær himinháu fjárhæðir sem spænska félagið vill fá fyrir að leysa hann undan samningi. Ramos sjálfur virðist vera búinn að gera upp hug sinn ef marka má það sem haft er eftir honum í Cadena Ser. "Tottenham verkefnið er stór draumur fyrir mig," sagði þjálfarinn. Brasilíski framherjinn Luis Fabiano hjá Sevilla lýsti yfir áhyggjum sínum á blaðamannafundi í morgun. "Það yrði slæmt fyrir félagið ef hann færi, en við reynum eins og við getum að einbeita okkur að næsta deildarleik."
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Fótbolti Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Sjá meira