Enski boltinn

Erikson sá við Ferguson - United enn án sigurs

Wes Brown fékk gula spjaldið í fyrri hálfleik.
Wes Brown fékk gula spjaldið í fyrri hálfleik.
Nú var að ljúka leik Man City og Man United. City vann leikinn 1-0 með marki frá Geovanni. United er því enn án sigurs eftir þrjá leiki í Úrvalsdeildinni. Bein textalýsing var á leiknum hér á Vísi

Byrjunarlið United: Van Der Sar, Brown, Evra, Ferdinand, Vidic, Carrick, Giggs, Nani, Hargreaves, Scholes og Tevez

Byrjunarlið City: Schmeichel, Corluka, Dunne, Garrido, Richards, Elano, Geovanni, Hamann, Johnson, Petrov og Bojinov.

1. mínúta - Clattenburg hefur flautað leikinn á. City byrjar með boltann.

4. mínúta - Nani er einn á móti markmanni eftir snyrtilegt spil hjá United. Hann skýtur á nærstöng en Schmeichel varði vel. Dauðafæri.

5. mínúta - Vidic á skalla að marki eftir hornspyrnu. Rétt framhjá.

6. mínúta - Áfall fyrir City. Bojinov er borinn meiddur af velli. Hann virðist vera meiddur á hné.

8. mínúta - Emile Mpenza kemur inná fyrir hinn meidda Bojinov.

11. mínúta - United pressar City stíft og er mun meira með boltann.

16. mínúta - Nani á gott skot eftir hraða sókn United. Schmeichel varði vel.

19. mínúta - United á tvö horn. Í því seinna kom Schmeichel sér í vandræði með slöku úthlaupi. Leikmenn City náðu að bjarga á síðustu stundu.

20. mínúta - Tevez er við það að komast einn í gegn en Micah Richards bjargar á síðustu stundu með góðri tæklingu.

23. mínúta - Nani á hælspyrnu sem losar Evra einan í gegn. Hann er tæklaður aftan frá en fær ekkert dæmt. Markspyrna dæmd.

25. mínúta - Tevez er aftur við það að komast einn í gegn. Micah Richards bjargar enn á síðustu stundu. Markið liggur í loftinu hjá United.

29. mínúta - Fyrsta marktilraun City. Johnson á máttlítið skot af 30 metra færi.

31. mínúta - Mark! Geovanni skorar með skoti rétt fyrir utan vítateig. Boltinn hafði viðkomu í Vidic og Van Der Sar kom engum vörnum við.

39. mínúta - City hafa eflst mjög eftir markið. Þeir leika boltanum af milli sín af miklu öryggi á meðan United berjast fyrir því að komast aftur inn í leikinn.

45. mínúta - Hálfleikur. United hefur verið betri aðilinn í fyrri hálfleik en mark City sló þá greinilega út af laginu.

47. mínúta - Vidic á skalla í slá eftir hornspyrnu. Frákastið fellur til Paul Scholes en hann bombar boltanum framhjá.

54. mínúta - Giggs kemst einn í gegn. Hann sendir boltann fyrir en Micah Richards nær á ótrúlegan hátt að hreinsa í horn.

59. mínúta - Scholes á skot rétt yfir. Ferguson setur Eagles inn á fyrir Nani.

60. mínúta - Tevez setur boltann nokkrum sentímetrum framhjá stönginni eftir fyrirgjöf frá Scholes. Heppnin er búinn að leik við Scmeichel í marki City í dag.

62. mínúta - Bianchi kemur inn á fyrir Elano

66. mínúta - Aukaspyrna dæmd á Hargreaves rétt fyrir utan teig. Geovanni skýtur að marki en Van Der Sar ver örugglega.

73. mínúta - Ferguson er að missa þolinmæðina. Hver sókninn á fætur annari strandar á vörn City. Michael Ball kemur inn á fyrir markaskorarann Geovanni. En O´Shea og Frazier Campbell koma inn á fyrir Wes Brown og Michael Carrick.

75. mínúta - Tevez á skot rétt framhjá eftir misheppnaða hreinsun hjá Micah Richards.

90. mínúta - Tevez skallar framhjá í dauðafæri. Hvernig fór maðurinn að þessu?!!!??!!

91. mínúta - Horn. Van Der Sar fer fram og freistar þess að skora. City hreinsar og reyna að skora frá miðju. Petrov skýtur framhjá. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×