Erlent

Biluð ratsjá olli töfum á flugi í Brasilíu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Brasilíumenn söfnuðust saman í gær til að biðja fyrir þeim sem létust í flugslysinu fyrr í vikunni.
Brasilíumenn söfnuðust saman í gær til að biðja fyrir þeim sem létust í flugslysinu fyrr í vikunni. Mynd/ AFP
Fjölmargar flugvélar, á leið frá Sao Paulo í Brasilíu til Bandaríkjanna, þurftu að snúa til baka þegar að ratsjá við Manaus í Amazon fylki bilaði. Ratsjáin þjónar 90% af flugi um Brasilíu. Aðeins einn sólarhringur er liðinn frá því að forseti Brasilíu sagði að flugöryggi í landinu væri eðlilegt miðað við alþjóðakröfur.

 

Um 200 manns létu lífið í Sao Paulo, 17. júlí síðastliðinn, þegar flugvél TAM flugfélagsins rann út af flugbrautinni og endaði á eldsneytisbirgðargeymslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×