Erlent

Þriggja leitað í tengslum við bílsprengjur í Lundúnum

MYND/AP

Breska lögreglan leitar nú logandi ljósi að þremur mönnum vegna tveggja bílsprengja sem fundust í miðborg Lundúna í gær. Fréttastofa bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar NBC greinir frá þessu og segir að lögregla viti hverjir mennirnir séu - þeir búi í Birmingham og næsta nágrenni.

Þetta er haft eftir heimildamönnum í bandaríska stjórnkerfinu sem fylgst hafa náið með rannsókn bresku lögreglunnar. Það var í fyrrinótt sem fyrri sprengjan fannst í bíl nærri vinsælum næturklúbb. Sú síðari fannst nokkrum klukkustundum síðar í bíl sem lagt var á bílastæði undir Hyde garði skammt frá klúbbnum.

Lögregla hefur varið síðasta sólahring í að skoða upptökur úr öryggismyndavélum á svæðinu. Fram kemur á fréttavef BBC að lögregla hafi hugsanlega fundið upptöku af ökumanni fyrri bílsins. Eftirlit hefur verið hert í Lundúnum og öryggisgæsla á stórviðburðum eins og minningartónleikum um Díönu prinsessu á Wembley leikvanginum á morgun aukin til muna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×