Erlent

Laminn til bana í Austin

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglan leitar upplýsinga vegna andláts manns í Austin.
Lögreglan leitar upplýsinga vegna andláts manns í Austin.

Lögreglan í Austin í Texas, Bandaríkjunum, biðlar nú til fólks sem gæti gefið upplýsingar sem hjálpa til við að góma gengismeðlimi sem lömdu mann til bana á þriðjudag. Samkvæmt heimildum lögreglunnar var aðdragandinn að árásinni sá að vinur mannsins ók á tveggja ára gamlan dreng. Bílstjórinn steig þá út úr bílnum til þess að athuga með líðan barnsins þegar hóp fólks dreif þar að. Morales steig út úr bílnum þegar hópurinn réðst að bílstjóranum og var þá sjálfur laminn til bana. Samkvæmt lögreglunni voru engar byssur eða hnífar notaðir í átökunum.

Bílstjórinn komst í burtu og vinnur nú með lögreglunni. Drengurinn var fluttur á sjúkrahús en var ekki í hættu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×