Erlent

Deildu hvert á annað vegna Íraksstríðsins

Til snarprar orðasennu kom á milli helstu frambjóðenda demókrata til forsetaembættis Bandaríkjanna í sjónvarpskappræðum sem haldnar voru í gær.

Átta manns sækjast eftir því að verða forsetaefni demókrata í kosningum á næsta ári og samkvæmt könnum virðast öldungadeildarþingmennirnir Hillary Clinton og Barack Obama ásamt fyrrverandi öldungardeildarþingmanninum John Edwards líklegustu sigurvegararnir.

Þau skiptust á skotum í gær þegar rætt var um Íraksstríðið en þar gagnrýndi Edwards bæði Obama og Hillary fyrir að nýta stöðu sína á Bandaríkjaþingi ekki nógu vel til að knýja á um að herinn yrði kvaddur heim frá Írak.

Benti Obama þá á að bæði Edwards og Hillay hefðu stutt innrásina í Írak en ekki hann. Hillary Clinton sagði hins vegar að stuðngurinn við innrásina hefði verið réttur á þeim tíma en George Bush bæri alla ábyrgð á klúðrinu í kringum Íraksstríðið. Sagðist hún myndu kalla herinn heim ef hún fengi til þess umboð sem forseti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×