Erlent

Tuttugu og einn lést í þyrluslysi í Síerra Leóne

Tuttugu og einn lést þegar farþegaþyrla fórst í Freetown í Síerra Leóne í gærkvöld. Flestir þeirra sem létust voru frá Tógó, þar á meðal íþróttamálaráðherra landsins, en þeir voru að koma af leik Tógó og Síerra Leóne í undankeppni Afríkukeppni landsliða. Annar flugmanna þyrlunnar mun hafa komist lífs af en hann mun vera í lífshættu. Þyrlan, sem var rússnesk, var að koma inn til lendingar á flugvellinum í Freetown þegar sprenging varð í henni en ekki liggur fyrir hvers vegna spreningin varð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×