Upp­gjör: Ís­land - Litáen 86-85 | Elvar tryggði sigurinn á ögur­stundu

Árni Jóhannsson skrifar
Elvar Már Friðriksson fagnar hér sigurkörfu sinni í Laugardalshöllinni í kvöld.
Elvar Már Friðriksson fagnar hér sigurkörfu sinni í Laugardalshöllinni í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Ísland vann stórkostlegan sigur á Litáen í kvöld. Liðið var yfir 20 stigum undir í seinni hálfleik en nagaði niður muninn og fékk sénsinn í lokin. Elvar Már Friðriksson tók sénsinn og tryggði sigurinn. Lokatölur 86-85.

Elvar Már átti einn besta landsleik sem leikmaður hefur spilað fyrir Ísland því auk þess að skora sigurkörfuna var hann með 34 stig , 86 prósent þriggja stiga nýtngu (6 af 7) og 6 stoðsendingar í kvöld. 

Ísland byrjaði leikinn frábærlega. Tryggvi Snær Hlinason varði fyrsta skot leiksins og okkar menn skoruðu níu fyrstu stigin og náðu að hrista vel upp í litháíska landsliðinu. Gestirnir eru eins og hefur komið fram ein af bestu körfuboltaþjóðum heimsins og sýndu gæðin sín fljótlega. Þier náðu að stoppa okkar sóknir og fóru að finna takt og skotin sín.

 Ísland náði að halda sjó og skora nógu mikið af körfum til að halda þeim í seilingarfjarlægð frá sér. Staðan var að loknum fyrsta leikhluta 24-21 og fimm leikmenn Íslands komnir á blað. Ólafur Ólafsson og Kristinn Pálsson voru báðir komnir með sex stig. 

Annar leikhluti var spegilmynd þess fyrsta en það voru Litháar sem byrjuðu mikið mun betur komust yfir og spiluðu eins og liðið sem valdið hefði. Ísland náði svo vopnum sínum og kom í veg fyrir það að gestirnir næðu að slíta sig frá okkar mönnum. Litháen komst sjö stigum yfir þegar tvær mínútur voru eftir af fyrri hálfleik en Ísland endaði leikhlutann betur og vann lokakaflann 9-3 og Elvar Már lagði boltann ofan í þegar flautan gall í fyrri hálfleik og staða 43-44 fyrir Litháen.

Elvar var kominn í 12 stig í fyrri hálfleik og Tryggvi með níu stig en Litháen var skrefi framar í. Þriðji leikhlutinn var svo í algjörri eigu gestanna. 

Þeir lokuðu teignum sínum vel og gerðu frábærlega í að hlaupa okkar menn af þriggja stiga línunni og gerðu það að verkum að skotin hættu að fara ofan í og svo var það þannig að Ísland náði ekki að taka skotin sín.

Á meðan fór allt ofan í hjá Litháen og þeim leið mjög vel. Litháen vann þriðja leikhlutann 24-11 og það var dimmt yfir okkar liði.

Ótrúlegur lokaleikhluti

Gestirnir byrjuðu á tveimur auðveldum körfum og voru komnir með 15 stig eftir sóknarfráköst. Það var dýrt fyrir okkar menn og gerði það að verkum að vekefnið var nánast ómögulegt. Litháen komst mest 21 stigi yfir þegar sjö mínútur voru eftir og það var þristur eftir sóknarfrákast sem kom gestunum yfir 20 stiga múrinn. Þá var tekið leikhlé og hlutirnir fóru að breytast.

Elvar Már Friðriksson sem var kominn með 15 stig eftir þriðja leikhluta setti niður þriggja stiga körfu, fékk villu að auki og fullkomnaði fjögurra stiga sókn. þegar um fimm mínútur voru eftir. Þá var staðan 61-77.

Hilmar Smári Henningsson skoraði fimm stig í röð og Ísland var farið að fá körfur eftir stoppin sín. Þá jókst vonin. Litháen var 10 stigum yfir þegar þrjár mínútur voru eftir 70-80. Ísland náði að naga það niður stig fyrir stig og þegar Elvar Már dúndraði niður þrist til að koma muninum í 81-83 það ætlaði allt um koll að keyra í Laugardalshöllinni.

Ísland pressaði og kom í veg fyrir að gestirnir skoruðu. Elvar Már var þá aftur á ferðinni þegar hann boraði niður þriggja stiga körfu og kom okkar mönnum yfir 84-83 og 30 sekúndur voru eftir. Sargunas komst á vítalínuna og setti niður bæði vítin en það voru enn 7 sekúndur eftir og Elvar fékk boltann eftir innkast. Boltinn fór í Litháa og út af og það voru 4,4 sekúndur eftir. Leikhlé var tekið en mér sýndist sama kerfi vera teiknað upp. 

Elvar fékk aftur boltann, dripplaði niður að endalínu, hleypa af skoti og skora um leið flautan gall. Allt trylltist og Ísland fangaði frábærum sigri á einu besta liði heims.

Sigurkarfan að líta dagsins ljós.Vísir / Hulda Margrét
Elvar Már leiðir fögnuðinn eins og leikinn allan.Vísir / Hulda Margrét
Hilmar Smári er mannlegur og trúir ekki eigin augum.Vísir / Hulda Margrét

Atvik leiksins

Það þarf ekkert að hafa mörg orð um það. Sigurkarfa Elvars Márs er atvik leiksins. Atvik ársins jafnvel í íslenskum körfubolta. Þvílík stund. 

Ósvikin gleðiVísir / Hulda Margrét

Stjörnur og skúrkar

Það verða engir skúrkar valdir í kvöld. Ég leyfi litháískum fjölmiðlum að taka sína menn í gegn en hér verður bara talað um stjörnur Íslands. Elvar Már tryggði sigurinn og skoraði 34 stig. Hann hitti úr sex af sjö þriggja stiga skotum sínum og var með 35 framlagspunkta. Hann sendi sex stoðsendingar og stal þremur boltum. 

Þá verður að tala um Hilmar Smára Henningsson sem skoraði fimm stig í fjórða leikhluta og níu í heild. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var með sex stig en þau skiptu öll máli og Óli Óla átti tvo þrista í upphafi sem gerðu mikið. Aðrir leikmenn áttu líka góðar innkomur og margar hendur lagðar á plóginn í dag.

Umgjörð og stemmning

Það var frábær stemmning í kvöld í Höllinni. Umgjörðin mjög fagleg og allt til fyrirmyndar. Hálf stúkan var græn og Litháarnir lituðu leikinn með góðri stemmningu og okkar fólk tók vel á móti. Úr varð frábær stemmning.

Dómararnir

Ég hef það fyrir reglu að ef maður verður lítið var við tríóið þá er ekkert út á það að setja. Þannig var það í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira