Erlent

Ekki sama Jón og séra Jón?

Björn Gíslason skrifar
Danska knattspyrnubullan ræðast á Herbert Fandel dómara í leiknum á laugardag.
Danska knattspyrnubullan ræðast á Herbert Fandel dómara í leiknum á laugardag. MYND/AP

Dagblöð í Danmörku spyrja í dag hvort gert sé upp á milli þegna landsins þegar litið sé til afbrota. Vísa þau þar til sögulegrar knattspyrnuviðureignar Dana og Svía á Parken á laugardag. Þar var dönsk fótboltabulla handtekin og á yfir höfði sér ákæru fyrir að hafa hlaupið inn á völlinn og reynt að slá til dómarans.

Þetta gerði bullan eftir að dómarinn hafði dæmt vítaspyrnu á Dani vegna þess að einn leikmanna danska liðsins, Christian Poulsen, kýldi mótherja sinn í magann af miklu afli.

Spyrja danskir fjölmiðlar hvort Poulsen eigi að sleppa við ákæru um líkamsáras bara vegna þess að hann er fræg fótboltastjarna, en árás hans hafi verið mun alvarlegri en árás dönsku bullunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×