Erlent

Taylor lét ekki sjá sig

Charles Taylor.
Charles Taylor. MYND/AP

Charles Taylor fyrrverandi forseti í Líberíu mætti ekki fyrir dómara í morgun þegar réttarhöld yfir honum hófust hjá stríðsglæpadómstól í Haag. Taylor er ákærður fyrir að styðja við bakið á uppreisnarmönnum í Sierra Leone og er hann fyrsti afríski leiðtoginn sem ákærður er fyrir stríðsglæpi.

Málið verður tekið fyrir sérstökum stríðsglæpadómstól í Haag og eru ákæruliðirnir ellefu talsins, þar á meðal ákæra um stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni.

Taylor komst til valda í Líberíu árið 1989 og er sagður hafa stutt við vopnabróður sinn, Foday Sankoh, og uppreisnarsveitir hans í Síerrra Leóne. Þær sveitir urðu alræmdar fyrir að höggva útlimi af borgurum í Síerra Leóne í ellefu ára baráttu sinni fyrir því að ná völdum í landinu.

Taylor er sagður hafa látið uppreisnarsveitunum í té bæði peninga og vopn í þeirri von að fá hluta af demantaauðæfum Síerra Leóne. Honum varð ekki kápan úr því klæðinu og eftir að uppreisninni í Síerra Leóne hafði verið hrundið var gefin út ákæra á hendur leiðtogum uppreisnarmanna og Taylor.

Búist er við að réttarhöldin yfir Taylor standi í að minnsta kosti eitt og hálft ár. Þau áttu upphaflega að fara fram í Síerra Leóne en sökum viðkvæms stjórnmálaástands voru þau flutt til Haag þar sem réttað hefur verið yfir ýmsum öðrum stríðsglæpamönnum.

 

Charles Taylor er fyrsti leiðtogi Afríkuríkis sem dreginn er fyrir stríðsglæpadómstól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×