Erlent

Krafa breskra stjórnvalda um framsal Lugovojs hlægileg

MYND/AP

Vladímír Pútín, forseti Rússland, segir kröfu breskra stjórnvalda um að fá fyrrverandi njósnara KGB framseldan til Bretlands vegna morðs á öðrum fyrrverandi njósnara hlægilega.

Bresk stjórnvöld farið fram á það að Andrei Lugovoj, fyrrverandi njósnari hjá KGB, verði framseldur til Bretlands fyrir að eitra fyrir Alexander Litvitvinenko, öðrum fyrrverandi njósnara KGB, með geislavirku efni á fundi sem þeir áttu í Lundúnum í nóvember í fyrra.

Pútín sagði á blaðamannafundi í gær að samkvæmt stjórnarskrá Rússland væri óheimilt að framselja rússneska ríkisborgara til Bretlands og hæddist hann að breskum saksóknurum fyrir að vita það ekki. Benti Pútín hins vegar á að hægt væri að sækja menn til saka í landinu fyrir glæpi sem framdir hefðu verið í öðru landi. Bretar hefðu hins vegar enn ekki lagt fram nægileg sönnunargögn fyrir því að Lugovoj hefði eitrað fyrir Litvinenko á fundi þeirra á síðasta ári.

Þetta er enn eitt dæmið um vaxandi kulda í samskiptum Rússa og Vesturveldanna en í gær hótaði hann því að beina kjarnorkueldflaugum Rússlands að ríkjum í Evrópu ef Bandaríkjamenn settu upp eldflaugavarnarkerfi í Austur-Evrópu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×