Erlent

Níu Bandaríkjamenn létu lífið í sjálfsmorðsárás í Írak

Bandarískir hermenn í Írak.
Bandarískir hermenn í Írak. MYND/AFP
Níu bandarískir hermenn létu lífið og tuttugu særðust í sjálfsmorðsárás á bandaríska herstöð í Diyala héraði fyrir norðan Bagdad í nótt. Ekki hafa fleiri hermenn látið lífið í einni og sömu árásinni í Írak í meira en eitt og hálft ár.

Árásin í nótt var ein sú blóðugasta síðan í desembermánuði 2005 en þá létust tíu bandarískir landönguliðar sjálfsmorðsárás nálægt borginni Falluja. Alls hafa 85 bandarískir hermenn látið lífið í átökunum í Írak í þessum mánuði.

Hörð átök hafa geysað í Diyala héraði undanfarnar vikur um yfirráð yfir héraðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×