Erlent

Tígrar gerðu loftárás nyrst á Sri-Lanka

Hermenn við öryggisgæslu í höfuðborginni Colombo
Hermenn við öryggisgæslu í höfuðborginni Colombo AFP

Uppreisnarsveitir Tamíl-tígra á Srí Lanka gerðu í morgun loftárásir á bækistöðvar stjórnarhersins nyrst í landinu og særðu minnst sex hermenn. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem tígrarnir varpa sprengjum úr flugvélum á hernaðarskotmörk. Uppreisnarmennirnir hafa sjálfir sagst hafa notað tvær flugvélar í árásinni. Flugvélunum smygluðu þeir til landsins í hlutum, enda ríkir blátt bann við vopnasölu til Tamíl-tígra. Vopnahléið, sem komið var á árið 2002, gildir enn að nafninu til en er í algjöru uppnámi. Skærur milli uppreisnarmanna og stjórnarhers hafa farið stigvaxandi undanfarna mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×