Enski boltinn

Andy Cole lánaður til Birmingham

Cole hefur farið víða undanfarin ár
Cole hefur farið víða undanfarin ár NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Andy Cole hefur gengið til liðs við 1.deildarlið Birmingham á lánssamning til loka leiktíðar. Cole hefur aðeins spilað fimm leiki fyrir lið sitt Portsmouth í úrvalsdeildinni í vetur. Hann gekk í raðir Portsmouth frá Manchester City fyrir hálfa milljón punda í fyrra.

Steve Bruce, stjóri Birmingham, lék með Cole á árunum 1995-96 þegar þeir voru hjá Manchester United og segist þurfa reynslubolta í framlínu sína á lokasprettinum í 1. deildinni. Birmingham er í ágætri stöðu til að tryggja sér strax aftur sæti á meðal þeirra bestu eftir fall úr úrvalsdeildinni síðasta vor.

"Andy getur sannarlega hjálpað okkur á lokasprettinum. Ég lék með honum hjá United á sínum tíma og þó það hafi verið fyrir löngu síðan, er Andy reyndur leikmaður sem hugsar vel um sig. Það er ástæðan fyrir því að hann er enn að leika í úrvalsdeildinni," sagði Bruce.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×