Formúla 1

Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina

Andri Broddason skrifar
Isack Hadjar (til hægri) er meiddur og mun ekki keyra um helgina. Liam Lawson (til vinstri) mun taka hans stað hjá Red Bull.
Isack Hadjar (til hægri) er meiddur og mun ekki keyra um helgina. Liam Lawson (til vinstri) mun taka hans stað hjá Red Bull. Clive Rose/Getty Images

Isack Hadjar mun ekki keyra í hollenska kappakstrinum um helgina. Hann er meiddur á úlnlið og mun Liam Lawson að öllum líkindum koma í hans stað þegar hollenski kappaksturinn fer fram.

Red Bull hefur ekki enn staðfest fréttirnar en samkvæmt Sky Sports er mjög ólíklegt að Isack Hadjar muni keyra Red Bull bílinn sinn í hollenska kappakstrinum sem fer fram um helgina. Þetta er fyrsta keppnin eftir sumarfrí en Hadjar þarf að bíða þolinmóður og ná bata áður en hann getur keyrt aftur.

Búist er við að Liam Lawson muni keyra Red Bull-bílinn hans Hadjar á meðan hann er fjarverandi. Hann mun því skilja eftir autt sæti í RB-bifreið sinni en búist er við að Yuki Tsunoda, varaökumaður Red Bull og RB, muni fylla í það skarð.

Isack Hadjar er að keyra á sínu öðru tímabili í Formúlu 1. Hann keyrði fyrir RB á sínu fyrsta tímabili en eftir að hafa keyrt vel fékk hann sæti hjá Red Bull á þessu tímabili. Aðeins 41 stig eru á milli hans og liðsfélaga hans hjá Red Bull, Max Verstappen.

Isack Hadjar er í áttunda sæti heimsmeistaramótsins en Red Bull-bíllin hefur ekki verið með þeim hröðustu á þessu tímabili eins og síðustu tímabil.

Liam Lawson kemur í stað Hadjar en hann hefur áður keyrt fyrir Red Bull. Hann byrjaði síðasta tímabil sem ökumaður liðsins en það entist stutt þar sem honum var vikið úr Red Bull-liðinu eftir aðeins tvær keppnir og skipti um bíl við Yuki Tsunoda sem var þá hjá RB-liðinu.

Yuki Tsunoda missti sæti sitt fyrir unga Bretann Arvid Lindblad á þessu tímabili en mun fá að snúa aftur um helgina. Það verður því mikilvægt fyrir hann að keyra vel ef áætlun hans er að snúa aftur í Formúlu 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×