Blendin viðbrögð við nýrri þjóðstjórn Palestínumanna 17. mars 2007 20:31 Þjóðstjórn Palestínu svarin í embætti í dag. MYND/AP
Evrópusambandið fagnaði í dag myndun þjóðstjórnar á heimasvæðum Palestínumanna en lýsti því um leið yfir efasemdum um stefnu hennar og aðgerðir. Bandaríkjamenn tóku hins vegar dýpra í árinni og sögðu þá stefnu stjórnarinnar að áskilja sér rétt til að berjast gegn Ísrael vekja ugg. Bæði Evrópusambandið og Bandaríkin drógu mikið úr stuðningi við Palestínumenn í fyrra þegar Hamas-liðar sigruðu í þingkosningum í Palestínu en Hamas hefur hingað til neitað að viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis. Í yfirlýsingu frá Evrópusambandinu í dag í kjölfar þess að þjóðstjórnin var svarin í embætti lýsir sambandið sig reiðubúið til samstarfs við löglega palestínska heimastjórn sem byggi stefnu sína á hugmyndum kvartettsins svokallaða, en það eru ESB, Bandaríkin, Sameinuðu þjóðirnar og Rússland. Munu Frank-Walter Steinmeier, utanríkisráðherra Þýskalands sem fer með forystu innan ESB þessi misserin, og Javier Solana, utanríkismálastjóri ESB, funda með Condoleezu Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á mánudag um hina nýju þjóðstjórn Palestínu. Bæði Ísraelar og Bandaríkjamenn hafa bent á að hin nýja ríkisstjórn hafi ekki uppfyllt þrjú skilyrði sem kvartettinn hafi sett: viðurkenningu á tilverurétti Ísraelsríkis, að hafna ofbeldi og því að samþykkja fyrri friðarssamninga.
Mest lesið Sigríður Björk og Jón Karl til Bessastaða Innlent Spyr hvort skoða þurfi mögulega árekstra eiginmanns ráðherra og fráfarandi forstjóra Innlent Vísar gagnrýni á bug og gefur lítið fyrir rök lækna Innlent „Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Innlent Setið um fjölskyldur félagsráðgjafa og börn þeirra áreitt Innlent Segist hafa rætt tvisvar við prinsinn í gini ljónsins Innlent Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Innlent Einn læknir sinnir þremur stjórnunarstöðum Innlent Milljónir farið í sáttagreiðslur í Hafnarfirði Innlent „Áratuga afturför“ og frost í greininni Innlent Fleiri fréttir Toppurinn kominn á hæstu kirkju heims Huldumaður gaf gullstangir til að laga vatnslagnir borgarinnar Spenna eykst á einum helgasta stað gyðinga og múslima Áfram húsleit á fyrra heimili Andrews „Mjög, mjög sorglegt“ Bandaríkjastjórn opnar síðu þar sem Evrópubúar geta séð lokað efni Andrew látinn laus Norðmenn koma af fjöllum og taka fyrir ummæli Trump Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Sjá meira