Erlent

Hlýjasti vetur sögunnar

Getty Images

Veturinn sem nú er að líða er sá hlýjasti á norðurhveli jarðar síðan reglulegar veðurfarsmælingar hófust fyrir 125 árum.

Samanlagður land- og sjóhiti frá desember fram í febrúar var 0,72 gráðum yfir meðaltali. Loftslagsstofnun Bandaríkjastjórnar kennir hafstraumnum El Nino um hlýnunina en segist ekki geta kennt gróðurhúsaáhrifum og almennri hlýnun jarðar um.

Fjölmargir aðrir sérfræðingar hafa hinsvegar ekki hikað við að staðhæfa að almennri hlýnun loftslags sé um að kenna, enda tíu hlýjustu ár síðan mælingar hófust öll eftir 1995. Þeir segja að áhrif El Nino séu minniháttar.

Loftslagsnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur sagt að hlýnun jarðar sé nær örugglega af manna völdum og hafa spáð því að hitastig hækki að meðaltali um allt að rúmlega 6 gráður fyrir lok aldarinnar ef mannkyn tekur sig ekki saman um að minnka koltvísýringsútblástur.

Veðurfræðingar spá því margir að árið sem nú er að líða verði það hlýjasta í sögunni síðan mælingar hófust árið 1890..




Fleiri fréttir

Sjá meira


×