McClaren sendi Beckham til Ameríku 12. janúar 2007 20:55 Wenger hefur sínar skoðanir á vesturför David Beckham NordicPhotos/GettyImages
Arsene Wenger hefur ákveðnar skoðanir á fyrirhuguðum vistaskiptum knattspyrnustjörnunnar David Beckham, en hann telur að ef leikmaðurinn hefði ekki misst sæti sitt í enska landsliðinu, hefði hann klárlega samið við lið í Evrópu. "Eftir það sem hann lenti í hjá Manchester United og Real Madrid, held ég að hann hafi einfaldlega ekki treyst sér til að detta út úr náðinni hjá enn einu stórliðinu og því hafi hann ákveðið að breyta alveg til. Það kemur mér því ekki á óvart að hann hafi kosið að róa á ný mið. Ég er viss um að hann hugsaði um að koma aftur til Englands í eitt eða tvö ár, en ég er líka viss um að 90% ákvörðunar hans að fara til Ameríku hafði með það að gera að hann missti sæti sitt í enska landsliðinu," sagði Wenger og bætti við að það væru háleit markmið hjá Beckham að ætla að hefja knattspyrnuna í nýjar hæðir í Bandaríkjunum. "Ég held að það þurfi eitthvað sex, sjö eða tíu sinnum stærra en þetta til að koma knattspyrnunni í Bandaríkjunum á hærri stall. Einn leikmaður dugar þar hvergi. Ég snæddi nýlega með Youri Djorkaeff sem lék með liði Metrostars þar vestra og hann sagði mér að þessi deild væri langt fyrir neðan Evrópu í gæðum," sagði Wenger, en útilokaði þó ekki að Beckham gæti spjarað sig þó hann væri orðinn 31 árs. "Hann hefur nú aldrei verið fljótur leikmaður en hann hefur gríðarlegt úthald. Sumir leikmenn eiga það til að detta aðeins niður í kring um þrítugt, en eiga svo mjög góð tvö eða þrjú ár fram að 34 ára aldri. Ég hef séð það margoft," sagði Wenger.
Enski boltinn Mest lesið Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Körfubolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira