Grinda­vík - KR 79-106 | Yfir­burðir bikarmeistaranna

Siggeir Ævarsson skrifar
KR-ingar glaðbeittir eftir sigurinn í kvöld.
KR-ingar glaðbeittir eftir sigurinn í kvöld. vísir/Guðmundur

KR-ingar eru meistarar meistaranna í körfubolta 2026 eftir nokkuð þægilegan sigur á Grindvíkingum í Grindavík. Lokatölur 106-79.

Það voru ansi þunnt skipaðir Íslandsmeistarar Grindavíkur sem tóku á bikarmeisturum KR í kvöld. Mikil meiðsli og seinkomur eru að hrjá Grindvíkinga þegar tæp vika er í að Íslandsmótið rúlli af stað.

Jeremy Pargo var í borgaralegum klæðum utan vallar og það munaði um minna fyrir Íslandsmeistarana.vísir/Guðmundur

Það virtist þó ekki koma að sök í byrjun leiks þar sem heimamenn fóru fjörlega af stað og leiddu nánast allan fyrsta leikhlutann. Það var ekki fyrr en Linards setti þrist spjaldið ofan í rétt fyrir lok leikhlutans að KR komst yfir í fyrsta sinn í leiknum.

Fáliðaðir Grindvíkingar voru að keyra á aðeins sjö leikmönnum og ekki hjálpaði að Arnór Tristan fékk sína þriðju villu strax í fyrsta leikhluta. Hann átti þó eftir að koma aftur við sögu í fyrri hálfleik og endaði stigahæstur heimamanna í hálfleik með 13 stig.

Smá hiti í mönnum en spennan hefði mátt vera meiri í kvöld.vísir/Guðmundur

KR-ingar virtust vera að ná undirtökum í leiknum rétt fyrir hálfleik en 8-0 áhlaup frá Grindvíkingum þýddi að staðan í hálfleik var 44-47 og leikurinn enn galopinn. Seigla og barátta Grindvíkinga virtist pirra KR-inga svolítið sem brutu nokkrum sinnum ansi hraustlega af sér sem gaf Grindvíkingum auka sóknir og ókeypis víti.

Gestirnir voru svo sem ekki fullskipaðir heldur. Bandaríski leikmaðurinn þeirra ekki kominn með leikheimild og Þórir Guðmundur fór meiddur af velli eftir aðeins rúmar fimm mínútur og spilaði ekki meir.

Reynir Bjarkan Barðdal Róbertsson með boltann í Grindavík í kvöld.vísir/Guðmundur

Það kom þó ekki að sök og eftir því sem leið á leikinn dró mjög af Grindvíkingum og KR-ingar tóku öll völd á vellinum í þriðja leikhluta sem þeir unnu 29-10 og staðan 56-78 fyrir loka leikhlutann, sem var í raun hálfgert formsatriði fyrir KR að klára en Grindvíkingar voru þá án Arnórs Tristans sem hafði fengið tæknivillu og sína fimmtu undir lok þriðja leikhluta.

Fjórði leikhlutinn var í raun algjört formsatriði fyrir KR-ingana að klára og örþreyttir Grindvíkingar áttu aldrei séns í að gera leik úr þessu eftir þriðja leikhluta og leyfðu yngri leikmönnum að klára leikinn. Lokatölur í Grindavík 79-106.

Stuðningsmenn KR létu vel í sér heyra í kvöld.vísir/Guðmundur

Atvik leiksins

Hálfleikurinn virðist hafa umpólað þessum leik. Munurinn fór úr þremur stigum í 15 eins og hendi væri veifað og leikurinn varð í raun aldrei spennandi eftir það.

Stjörnur og skúrkar

Friðrik Anton Jónsson hitti heldur betur á góðan skotleik í kvöld, setti sjö þrista í tólf tilraunum og endaði stigahæstur KR-inga með 21 stig. Hann deilir stigatitlinum með Roberts Berzins.

Hjá Grindavík var Mirza Bulic stigahæstur með 20 stig og reif niður 16 fráköst að auki. Arnór Tristan og Valur Orri skoruðu báðir 17 stig.

Dómarar

Það var nóg að gera hjá dómurum leiksins framan af en menn róuðust aðeins þegar á leið og komst tríóið ágætlega frá þessum leik.

Stemming og umgjörð

Grindvíkingar mættu vel í stúkuna í kvöld en höfðu frekar hægt um sig. Stinningskaldi greinilega enn í sumarfríi. KR-ingar voru aftur á móti frekar fáir en létu vel í sér heyra.

Viðtöl

Viðtöl væntanleg innan skamms.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira