Upp­gjörið: Ís­land - Búlgaría 3-0 | Ein­stak­lings­gæði tryggðu þrjú stig

Íþróttadeild Sýnar skrifar
Orri fagnar marki sínu með sínu einkennisfagni í dag gegn Búlgaríu.
Orri fagnar marki sínu með sínu einkennisfagni í dag gegn Búlgaríu. Vísir/Anton Brink

Ísland er komið með sjö stig í C-deild Þjóðadeildarinnar eftir 3-0 sigur á Búlgaríu á Laugardalsvelli. Mörkin þrjú sýndu þau einstaklingsgæði sem íslenska liðið býr yfir en frammistaðan í heild var ekki upp á marga fiska gegn annars slökum mótherja.

Það var verulega blautt og hráslagalegt þegar liðin mættu út á völl í dag. Það vakti strax athygli að Arnar Gunnlaugsson gerði sex breytingar á byrjunarliði Íslands frá 3-0 sigrinum í Lúxemborg á dögunum.

Hákon Rafn Valdimarsson var á milli stanganna. Þar fyrir framan, frá vinstri til hægri, voru Mikael Egill Ellertsson, Hörður Björgvin Magnússon, Aron Einar Gunnarsson og Mikael Neville Anderson. Á miðri miðjunni voru Ísak Bergmann Jóhannesson og Andri Fannar Baldursson. Á vængjunum þeir Arnór Sigurðsson og Jón Dagur Þorsteinsson á meðan Hákon Arnar Haraldsson var í holunni á bak við Orra Stein Óskarsson sem var jafnframt fyrirliði.

Miðvarðaparið byrjaði ekki frábærlega, Aron Einar átti misheppnaða tilraun til tæklingar á fyrstu mínútu leiksins sem endaði með aukaspyrnu á hættulegum stað fyrir gestina. Hörður Björgvin nældi sér svo í gult spjald þegar ekki voru komnar fjórar mínútur á klukkuna.

Aron Einar Gunnarsson hóf leik í miðri vörn Íslands.vísir/Anton

Íslenska liðið var mikið mun meira með boltann framan af fyrri hálfleik án þess þó að skapa sér einhver almennileg marktækifæri. Gestirnir bitu aðeins frá sér þegar rúmar 20 mínútur eða svo voru liðnar af leiknum og opnaðist íslenska vörnin illa í tvígang. Í fyrra skiptið rann möguleiki Búlgara á góðri sókn hratt út í sandinn en stuttu þar á eftir brenndi Atanas Iliev af algjöru dauðafæri inn í markteig.

Það var tæpur hálftími liðinn þegar Ísland komst loks í ákjósanlega stöðu í vítateig gestanna. Hákon Arnar gerði þá frábærlega, renndi boltanum á Arnór Sig sem gaf fyrir - þar sem enginn var - frekar en að skjóta sjálfur. Andri Fannar átti svo langskot, sem fór af varnarmanni, og kallaði þannig fram fína Youtube-vörslu hjá markverðinum Daniel Naumov.

Þegar átta mínútur voru til hálfleiks tókst Íslandi loks að brjóta ísinn. Hörður Björgvin fann Hákon Arnar sem dansaði með boltann fyrir utan teig. Skagamaðurinn stakk boltanum í kjölfarið inn á teig þar sem Ísak Bergmann sýndi leikskilning úr hæstu hillu og steig yfir boltann sem rataði á Orra Stein. Framherji af hans kalíberi gat ekki annað en nýtt slíkt dauðafæri, smellti boltanum með hægri fæti í hornið fjær og staðan orðin 1-0.

Andri Fannar Baldursson ánægður með Orra Stein Óskarsson eftir fyrra mark hans í dag.vísir/Anton

Í blálok fyrri hálfleiks gerðu nafnarnir Hákon Rafn og Hákon Arnar heiðarlega tilraun til að gefa gestunum mark. Markvörðurinn sendi þá lausan bolta á nafna sinn sem tapaði boltanum rétt fyrir utan teig. Upp úr því kom fyrsta skot gestanna, úr þröngu færi þó, og Hákon Rafn varði í horn. Hornspyrnan bauð svo upp á annað dauðafæri Iliev en boltinn barst á fjær, var skallaður fyrir markið þar sem Iliev var óvaldaður en skot hans sem betur fer beint á markið þar sem Hákon Rafn stóð.

Staðan var því 1-0 í hálfleik en færa má ágætis rök fyrir því að það hafi verið óverðskuldað. Það sagði sitt að Arnar gerði tvöfalda skiptingu í hálfleik. Inn komu Andri Lucas Guðjohnsen og Daníel Leó Grétarsson, út fóru Arnór Sig og Aron Einar.

Eftir smá bras í upphafi síðari hálfleiks vann Jón Dagur boltann upp við endalínu, negldi fyrir þar sem Orri Steinn reyndi að flikka boltanum með hælnum á markið en því miður fór boltinn hárfínt framhjá stönginni fjær.

Andri Fannar Baldursson kom inn á miðjuna hjá Íslandi í dag.vísir/Anton

Fyrirliðanum brást ekki bogalistin þegar klukkustund var liðin. Hákon Arnar renndi boltanum þá á Mikael Anderson sem hafði tekið á rás í gegnum vörn gestanna. Mikael renndi boltanum svo fyrir markið þar sem Orri Steinn gat ekki annað en tvöfaldað forystu Íslands.

Skömmu eftir að staðan varð 2-0 gerði Ísland aftur tvöfalda skiptingu. Guðlaugur Victor Pálsson kom inn fyrir Jón Dag sem þýddi að Mikael Anderson færði sig upp á hægri vænginn. Þá kom Gylfi Þór Sigurðsson inn fyrir Andra Fannar.

Annað hvort var það staðan í leiknum, veðrið eða staðreyndin að þetta var þriðji leikur margra leikmanna á viku en frammistaðan eftir að Ísland komst 2-0 yfir var vægast sagt kæruleysisleg. Lítil ákefð, skrítnar ákvarðanir og slakar sendingar. Aftur kom það ekki að sök þar sem gestirnir frá Búlgaríu eru langt því frá það stórlið sem þeir voru hér á árum áður.

Þegar tæpar tíu mínútur lifðu leiks fékk Ísland vítaspyrnu eftir að boltinn fór í hönd leikmanns gestanna. Á meðan beðið var eftir ákvörðun myndbandsdómara leiksins kom Logi Tómasson inn fyrir Hákon Arnar.

Það þurfti enga þjálfaragráðu til að lesa það að Orri Steinn færi á punktinn. Eftir langt tékk dómaranna var endanlega staðfest að vítaspyrna væri niðurstaðan en það virtist sem biðin hafi haft áhrif á framherjann. Hann þrumaði boltanum vinstra megin á markið en í fínni hæð fyrir markvörð gestanna sem varði vel. Staðan því enn 2-0 og engin þrenna hjá Orra Steini.

Strákarnir fögnuðu þremur mörkum og góðum sigri í dag.vísir/Anton

Segja má að Orri Steinn hafi bætt upp fyrir klúðrið í blálok venjulegs leiktíma þegar hann renndi boltanum á Mikael Egil sem var á fleygiferð í gegnum flata vörn Búlgaríu. Bakvörðurinn, sem var þó kominn á vænginn þegar hér var komið við sögu, kláraði færið listavel og gerði endanlega út um leikinn. Staðan orðin 3-0 og reyndust það lokatölur á Laugardalsvelli í dag.

Annar 3-0 sigur Íslands staðreynd og liðið með sjö stig að loknum þremur leikjum. Næsta verkefni er Eistland úti þann 6. Október næstkomandi.

Atvik leiksins

Annað mark leiksins fær þetta í dag. Eftir smá bras í upphafi síðari hálfleiks má segja að markið hafi gert út um vonir gestanna. Líkt og fyrra markið þá skinu einstaklingsgæði okkar bestu manna í gegn í sókninni sem skóp markið.

Stjörnur og skúrkar

Orri Steinn Óskarsson sýndi hversu frábær hann er inn í teignum með tveimur góðum mörkum og stoðsendingu. Á öðru degi hefði hann án efa tryggt þrennuna. Þá minnti Hákon Arnar okkur á hversu ótrúlegur fótboltamaður hann er. Skagamaðurinn var allt í öllu í sóknarleik Íslands. Einnig er vert að minnast á Mikael Egil sem virðist njóta sín hvað best á vængnum þessa dagana.

Leiðinlegt að setja fyrrum fyrirliða liðsins á skúrk en Aron Einar var í engum takt við leikinn og var eðlilega tekinn af velli í hálfleik.

Umgjörð og stemmning

Umgjörðin var fín en stemningin var í takt við veðrið. Ekki hjálpaði spilamennskan í fyrri hálfleik við að keyra upp stemmningu.

Dómarinn

Berke Balázs frá Ungverjalandi spjaldaði Hörð Björgvin snemma leiks fyrir litlar sakir. Mikael Egill fékk sömuleiðis gult fyrir litlar sakir en Balász flautaði oft seint og í raun á ekki neitt.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira