Erlent

Götubardagar á þjóðhátíðinni

Öryggisverðir notuðu regnhlífar til að verjast eggjakasti.
Öryggisverðir notuðu regnhlífar til að verjast eggjakasti. MYND/AP

Mótmælaaðgerðir stjórnarandstæðinga settu sterkan svip á hátíðarhöld á þjóðhátíðardegi Ungverja á miðvikud. Þúsundir hægrimanna söfnuðust saman og kröfðust afsagnar forsætisráðherrans og sósíalistans Ferenc Gyurscany.

Hörð átök herskárra þjóðernissinna við lögreglu brutust út um kvöldið og voru tugir manna handteknir. Ekki er búist við miklum átökum næstu daga, en mótmæli gegn Gyurscany hafa brotist út reglulega í vetur.

Þjóðhátíðardagurinn er haldinn til minningar um uppreisn Ungverja gegn Habsborgarveldinu árið 1848.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×