Erlent

Engar sannanir fyrir morðum

Utanríkisráðherra Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier, á blaðamannafundi vegna málsins.
Nordicphotos/afp
Utanríkisráðherra Þýskalands, Frank-Walter Steinmeier, á blaðamannafundi vegna málsins. Nordicphotos/afp

Engar sannanir hafa fundist fyrir því að tveir þýskir ríkisborgarar hafi verið drepnir af talibönum í gær. Talibanar rændu Þjóðverjunum ásamt fimm Afgönum á miðvikudag í Wardak-héraði í Afganistan. Sögðust talibanarnir hafa drepið Þjóðverjana vegna þess að þýsk stjórnvöld vildu ekki draga þrjú þúsund manna herlið sitt frá Afganistan.



Stjórnvöld í Afganistan telja aftur á móti að annar Þjóðverjanna hafi látist úr hjartaáfalli og að hinn sé enn á lífi. „Allt bendir til þess að hann hafi látist vegna álagsins sem fylgdi mannráninu,“ sagði Frank-Walter Steinmeier, utanríkisráðherra Þýskalands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×