Erlent

Hundruðum bjargað úr vatnsflaumi

Tveir bílar mara í hálfu kafi í Wallington á Suður-Englandi. Miklar rigningar hafa verið í landinu sem hafa orsakað mikil flóð víða um landið.
Tveir bílar mara í hálfu kafi í Wallington á Suður-Englandi. Miklar rigningar hafa verið í landinu sem hafa orsakað mikil flóð víða um landið. Ap/fréttablaðið

Þyrlur og bátar björguðu hundruðum manna úr vatnsflaumi víðs vegar um England í fyrradag og í gær eftir að miklir stormar höfðu gengið yfir landið og orsakað flóð.



Barbara Young hjá breska umhverfisráðinu segir að einungis rigni svo mikið í landinu á 100, 150 eða jafnvel 200 ára fresti.



Þyrlur breska flughersins björguðu meira en hundrað manns af húsþökum í þorpum sem vatnselgurinn hafði flætt um og um tvöþúsund manns eyddu aðfaranótt laugardags í neyðarskýlum í Gloucester-skíri, sýslu í suðvesturhluta Englands.



Gordon Brown, forsætisráðherra Englands, sagði að yfirvöld í landinu hefðu brugðist skjótt við neyðarástandinu sem skapaðist í landinu. „Þegar þær aðstæður skapast að það rignir eins mikið á einum eða tveimur tímum og á einum mánuði, þá þarf að bregðast hratt og örugglega við,“ segir Brown. Brown sagði að yfirvöld í Bretlandi þyrftu að athuga hvort ekki þyrfti að bæta flóðavarnir í landinu.



Í bænum Pershore, sem er um 200 kílómetra norðvestur af London, rigndi sem svarar 14,45 sentímetrum á 25 tímum frá fimmtudegi til föstudags. meðalúrkoma á svæðinu eru fimm til sex sentímetrar á mánuði.

Vegfarendur víðs vegar um landið þurftu að gista í bílum sínum við þjóðvegi í landinu aðfaranótt laugardags því ekki var hægt að komast leiðar sinnar út af vatnsflaumnum.



141 flugi frá Heathrow var frestað vegna rigninganna og í suðurhluta Lundúna náði vatnsflaumurinn rúmlega sextíu sentímetra hæð.



Í bænum Stratford-upon-Avon, sem er um 160 kílómetra norðvestur af London, flæddi inn kjallara Konunglega Shakespeare-leikhúsins. Leikfélag sem átti að sýna Makbeð í leikhúsinu þurfti að fresta sýningunni af ótta við að leikhúsgestir kæmust ekki út af vatnselgnum.



Veðurfræðingurinn Steve Nash segist aldrei hafa séð aðrar eins rigningar á Englandi á þeim 34 árum sem hann hefur unnið í faginu og að líkja megi úrhellinu við rigningar í regnskógum í hitabeltinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×