Hundruðum bjargað úr vatnsflaumi 22. júlí 2007 04:45 Tveir bílar mara í hálfu kafi í Wallington á Suður-Englandi. Miklar rigningar hafa verið í landinu sem hafa orsakað mikil flóð víða um landið. Ap/fréttablaðið
Þyrlur og bátar björguðu hundruðum manna úr vatnsflaumi víðs vegar um England í fyrradag og í gær eftir að miklir stormar höfðu gengið yfir landið og orsakað flóð. Barbara Young hjá breska umhverfisráðinu segir að einungis rigni svo mikið í landinu á 100, 150 eða jafnvel 200 ára fresti. Þyrlur breska flughersins björguðu meira en hundrað manns af húsþökum í þorpum sem vatnselgurinn hafði flætt um og um tvöþúsund manns eyddu aðfaranótt laugardags í neyðarskýlum í Gloucester-skíri, sýslu í suðvesturhluta Englands. Gordon Brown, forsætisráðherra Englands, sagði að yfirvöld í landinu hefðu brugðist skjótt við neyðarástandinu sem skapaðist í landinu. „Þegar þær aðstæður skapast að það rignir eins mikið á einum eða tveimur tímum og á einum mánuði, þá þarf að bregðast hratt og örugglega við,“ segir Brown. Brown sagði að yfirvöld í Bretlandi þyrftu að athuga hvort ekki þyrfti að bæta flóðavarnir í landinu. Í bænum Pershore, sem er um 200 kílómetra norðvestur af London, rigndi sem svarar 14,45 sentímetrum á 25 tímum frá fimmtudegi til föstudags. meðalúrkoma á svæðinu eru fimm til sex sentímetrar á mánuði. Vegfarendur víðs vegar um landið þurftu að gista í bílum sínum við þjóðvegi í landinu aðfaranótt laugardags því ekki var hægt að komast leiðar sinnar út af vatnsflaumnum. 141 flugi frá Heathrow var frestað vegna rigninganna og í suðurhluta Lundúna náði vatnsflaumurinn rúmlega sextíu sentímetra hæð. Í bænum Stratford-upon-Avon, sem er um 160 kílómetra norðvestur af London, flæddi inn kjallara Konunglega Shakespeare-leikhúsins. Leikfélag sem átti að sýna Makbeð í leikhúsinu þurfti að fresta sýningunni af ótta við að leikhúsgestir kæmust ekki út af vatnselgnum. Veðurfræðingurinn Steve Nash segist aldrei hafa séð aðrar eins rigningar á Englandi á þeim 34 árum sem hann hefur unnið í faginu og að líkja megi úrhellinu við rigningar í regnskógum í hitabeltinu.
Mest lesið Brynjar ráðinn korter í kosningar Innlent „Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Innlent Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Erlent Eitt helsta kennileiti bæjarins rifið: „Þetta er annað heimilið mitt“ Innlent Hraðlyginn leiðsögumaður úr landi Innlent „Við ætlum ekki að líða þetta“ Innlent Segir ummæli séra Jakobs kalla á rannsókn lögreglu Innlent Baðst afsökunar í þinginu: „Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana“ Innlent Sagði frá ofbeldinu í fyrsta skipti Innlent Flóttinn frá Dúbaí gengur vel Innlent Fleiri fréttir Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Sjá meira