Erlent

Dómari og kona hans í kviðdómi

Thomas Conklin, dómari í Kansas, og Judy, kona hans, storkuðu lögmálum stærðfræðinnar nýlega þegar þau voru bæði valin til að sitja í kviðdómi á sama degi. Þúsundir Kansasbúa koma til greina í slíka vinnu, en lögum samkvæmt skulu allir taka að sér setu í kviðdómi í Bandaríkjunum ef þeir eru kvaddir til þess.



Til að kóróna ólíkindin kom síðan í ljós að réttarhöldin sem Thomas þurfti að vera viðstaddur og úrskurða um í félagi við aðra meðlimi kviðdómsins, áttu sér stað í dómsalnum sem hann dæmir alla jafna í sjálfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×