Erlent

Hársnauðir stungnir af marglyttum

Norskir vísindamenn við Oslóarháskóla óska eftir hugrökkum og hársnauðum einstaklingum sem eru tilbúnir til að bretta upp ermar og láta marglyttu stinga sig – í nafni vísindanna.



Verið er að prófa sólarvörn sem á að vernda fólk gegn stungum marglyttna. Óskað var eftir hársnauðum tilraunadýrum svo að marglytturnar ættu auðveldara með að stinga þau.



Tilraunin fer fram í dag og í gær höfðu aðeins fimm manns skráð sig til þátttöku. Talsmaður líffræðideildar háskólans var þó bjartýnn á að ná í tíu manna hóp.



Þátttakendur verða síðan leystir út með þremur flöskum af sólarvörninni góðu sem vonandi gerir sitt gagn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×