Erlent

Framboðsfrestur í Frakklandi að renna út

Segolene Royal frambjóðandi sósíalista
Segolene Royal frambjóðandi sósíalista AP

Í dag rennur út framboðsfrestur fyrir forsetakosningarnar í Frakklandi. Þau sem helst berjast um hnossið eru Nicolas Sarkozy frambjóðandi hægrimanna sem er naumlega efstur í skoðanakönnunum, Segolene Royal frambjóðandi sósíalista og Francois Bayrou, miðjumaður sem hefur saxað verulega á forskot Sarkozy og Royal og virðist ætla að geta komist upp á milli þeirra.

Sá fjórði sem blandar sér í baráttuna er öfga-hægrimaðurinn Jean-Marie le Pen en hann virðist eiga litla möguleika. Fjölmörg smærri framboð hafa einnig komið fram en virðast ekki njóta mikilla vinsælda en þó segja stjórnmálaskýrendur að þessir óvinsælli frambjóðendur geti sett strik í reikninginn þar sem svo mjótt er á munum milli efstu þriggja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×