Erlent

Átök milli lögreglu og mótmælenda í Búdapest

AP

Til átaka kom á milli lögreglu og öfgasinnaðra hægrimanna á götum Búdapest í Ungverjalandi í gærkvöldi. Vandræðin hófust þegar leiðtogi þjóðernissinna, Gyorgy Budahazy var handtekinn á útifundi. Lögregla beitti táragasi og vatnsdælum til að dreifa mannfjöldanum þegar óeiðrirnar mögnuðust.

Fram að handtökunni hafði útifundurinn verið friðsamlegur. Meðal ræðumanna á fundinum var David Irving, breskur sagnfræðingur sem hefur setið í fanglesi fyrir að afneita helför gyðinga. Fundarmenn flögguðu fasistafánum og hrópuðu slagorð en fundurinn var haldinn til að minnast skammvinns sjálfstæðis Ungverjalands árið 1848.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×