Kristjáni meinað að tjá sig um mengunina 7. febrúar 2007 19:47 Kristján Guðmundsson Mynd/Víkurfréttir
Þjálfari knattspyrnuliðs Keflavíkur leitaði sér læknisaðstoðar eftir að hafa fengið sýkingu í augu vegna svifryks í Reykjaneshöll. Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hyggjast leysa svifryksvandann með ryksugu, en þjálfaranum var bannað að veita viðtal vegna málsins. Í íþróttafréttum stöðvar 2 í gær var greint frá því að niðurstöður úr mælingum Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja hafa leitt í ljós að svifryksmengun er langt yfir hættumörkum í Reykjaneshöllinni. Höllin var vígð árið 2000 og var gert ráð fyrir því í upphafi að endingartími gervigrassins í höllinni væri 10 ár. Þeir sem fréttastofa hefur rætt við segja það alveg á hreinu að endingatími gervigrassins sé löngu liðinn og eru dæmi um að sumir knattspyrnumenn geti ekki lengur æft í höllinni. Kristján Guðmundsson þjálfari úrvalsdeildarliðs Keflavíkur sagði í viðtali við íþróttaþáttinn Mín Skoðun á X-inu á dögunum að hann hafi fengið sýkingu í augun og þurft að leita til læknis vegna svifryksmengunarinnar. Kristján féllst á að veita fréttastofu stöðvar 2 viðtal vegna málsins í dag en þegar fréttamaður bankaði upp á sagði Kristján að sér hefði verið meinað að tjá sig frekar um málið. Kristján vildi ekki upplýsa um hver hefði bannað honum að tala en Rúnar Arnarson formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur sagðist í samtali við fréttastofu ekki hafa tekið fram fyrir hendurnar á Kristjáni. Víkurfréttir greindu frá því í morgun að Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hygðust leysa svifryksvandann með því að fjárfesta í þar til gerðri ryksugu, samkvæmt því sem fram kom á bæjarstjórnarfundi í gær. Ryksugubúnaðurinn kostar allt að þrjár milljónir króna en Nýtt gervigras kostar hátt í 30 milljónir. Fresturinn sem Heilbrigðisyfirvöld höfðu gefið bæjaryfirvöldum til að skila úrbótaáætlun rann út um síðustu mánaðarmót en var framlengdur fram að næsta fundi heilbrigðisnefndar sem verður eftir viku.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Fótbolti Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Fótbolti Fleiri fréttir Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira