Lögregla beitti táragasi á mótmælendur 10. júní 2007 07:30 Uppstillingin á fundi páfans og Bandaríkjaforseta í Vatíkaninu í gær vakti nokkra athygli. Höfðu einhverjir á orði að Bush hefði litið út eins og nemandi í yfirheyrslu hjá skólastjóra. MYND/AFP
Ítalska lögreglan neyddist til að beita táragasi á tugþúsundir mótmælenda sem saman voru komnir í Róm í gær til að andmæla George W. Bush Bandaríkjaforseta og stefnu ríkisstjórnar hans gagnvart aukinni hnattvæðingu og hernaði í Írak. Framan af degi höfðu mótmælin verið hin friðsælustu en eftir að Bush hafði lokið fundahöldum með Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, og Benedikt páfa XVI fóru mótmælendurnir að láta ófriðlega. Eftir átök á milli lögreglu og mótmælenda í yfir klukkustund, þar sem flöskum, múrsteinum og öðru lauslegu var kastað í átt að lögreglumönnum, ákváðu þeir að beita táragasi á þá sem verst létu. Náði lögreglan tökum á ástandinu í kjölfarið. Einn lögreglumaður og einn mótmælandi voru fluttir á sjúkrahús vegna meiðsla og nokkrir ólátaseggjanna voru handteknir. Bush hóf gærdaginn á því að ræða við Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, og að sögn þeirra beggja gekk fundurinn afar vel. Samband Bandaríkjanna við Ítalíu er mjög gott,“ sagði Bush eftir fundinn með Prodi, sem tók í sama streng og Bandaríkjaforseti. „Við erum í meginatriðum sammála um hvernig heimurinn eigi að vera,“ sagði ítalski leiðtoginn. Fundur Bush með Benedikt páfa fór að mestu í að ræða stöðu kristinna í Írak. Sagði Bush að páfinn hefði lýst yfir áhyggjum sínum yfir aðstæðum kristinna í hinu stríðshrjáða landi, sem og annars staðar í Mið-Austurlöndum. Bush sagði ennfremur að páfinn vonaðist til þess að hinn forni samfélagshópur kristinna muni halda velli, þrátt fyrir að þeir yrðu fyrir ofbeldi á degi hverjum. „Við töluðum minna um stríðið í Írak,“ bætti Bush við. Talið er að um þrjú prósent af þeim 26 milljónum sem búa í Írak séu kristinnar trúar. Margir þeirra hafa flúið landið á undanförnum vikum af ótta við ofbeldi múslima. Kristnar kirkjur eru nánast mannlausar eftir morð og mannrán á þeirra slóðum síðustu vikur. Bush sagði enn fremur að heimsóknin í Vatíkanið hefði hreyft við sér og páfinn væri „mjög snjall og umhyggjusamur maður“. Þetta var í fyrsta sinn sem Bush hittir Benedikt páfa á opinberum vettvangi.
Mest lesið Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Innlent Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Erlent Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Innlent Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Innlent Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel Innlent Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Innlent Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Innlent Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Erlent Forsetahjónin verða viðstödd vígslu íþróttamannvirkis í Búðardal Innlent Fleiri fréttir Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Jagland á sjúkrahúsi í kjölfar ákærunnar Komu forsætisráðherranum í var vegna sprengjuhótunar Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Sjá meira