Erlent

Flæddi yfir heilu þorpin

Tala látinna eftir fellibylinn Gonu er orðin yfir sjötíu eftir að hann reið yfir nokkur smærri eyðimerkurþorp syðst í Íran í gær. Mikil flóð ollu gríðarlegri eyðileggingu og eru dæmi um að heilu þorpin hafi hreinlega þurrkast út vegna þeirra.

„120 fjölskyldur bjuggu í þessu samfélagi okkar áður. Ekki eitt einasta hús náði að standa af sér flóðin í dag. Við getum hvergi leitað skjóls,“ sagði íbúi í Kahir, en þar standa nú rústir einar.

Vindhraði Gonu hefur hríðlækkað eftir að hann náði inn á meginlandið og flokkast nú sem kröftugur hitabeltisstormur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×