Erlent

Kosningar sem breyta sáralitlu

Kosið í damaskus. 2.500 frambjóðendur keppa um 250 þingsæti.
Kosið í damaskus. 2.500 frambjóðendur keppa um 250 þingsæti.

Stjórnarandstæðingar í Sýrlandi segja þingkosningar, sem haldnar voru þar á sunnudag og mánudag, hafa verið skrípaleik og kosningaþátttakan hafi verið sáralítil.

Ríkisdagblöð halda því hins vegar fram að í kosningunum hafi verið „gífurleg þátttaka“ og „hörð samkeppni“.

Kosningarnar breyta hins vegar litlu því meirihluti þingsæta er fyrirfram frátekinn fyrir stjórnarflokkana. Stjórnvöld vonast þó til þess að þær bæti ímynd landsins.

Ekki er búist við að úrslit liggi fyrir fyrr en á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×