Erlent

Miklar efasemdir í ráðherraliði Blairs

Bókin sem rætt er um í Bretlandi þessa dagana.
Bókin sem rætt er um í Bretlandi þessa dagana.

Ráðherrar í ríkisstjórn Tonys Blair höfðu á sínum tíma miklar efasemdir um réttmæti þess að ráðast á Írak. Þetta fullyrðir Alastair Campbell, fyrrverandi blaðafulltrúi Blairs, í dagbókum sínum sem komu út á bók í gær.



„Við höfðum öll, held ég, á stundum miklar efasemdir en hann virtist engar hafa, eða hélt þeim að minnsta kosti vel leyndum, jafnvel fyrir okkur,“ skrifaði Campbell í dagbók sína 18. mars árið 2003, sama daginn og breska þingið féllst á að breski herinn tæki þátt í innrásinni.

Mikið gekk á í liði Blairs á þessum tíma og á ríkisstjórnarfundi daginn áður en þingið hófst virtust þeir John Prescott aðstoðarforsætisráðherra og John Reid, formaður Verkamannaflokksins, hreinlega orðnir líkamlega veikir, að því er Campbell skrifar.



Reid varaði Blair við því að fara út í þessar umdeildu hernaðaraðgerðir: „Gerðir okkar verða dæmdar af því þjóðfélagi sem tekur við af Saddam í Írak,“ segir í dagbók Campbells.



Dagbækur Campbells varpa nýju ljósi á þennan tíma, þótt áður hafi verið ljóst að ákvörðunin um að ráðast inn í Írak hafi verið afar umdeild innan bresku stjórnarinnar.



Campbell var stjórnmálaritstjóri hjá dagblaðinu The Daily Mirror, en sagði af sér til að vinna fyrir Blair, sem þremur árum síðar leiddi Verkamannaflokkinn til sigurs í þingkosningum. Blair gerði Campbell að helsta fjölmiðlafulltrúa sínum, og Campbell varð fljótt alræmdur sem einn helsti „spunameistari“ bresku stjórnarinnar, og þótt víðar væri leitað.

Hann lagði mikla vinnu í að hafa áhrif á allan fréttaflutning af verkum ríkisstjórnarinnar, reyndi jafnan að draga fram jákvæðu hliðarnar og snúa vopnin úr höndum gagnrýnenda með öllum tiltækum ráðum.



Campbell sagði af sér árið 2003 í kjölfar rannsóknar á dauða vopnasérfræðingsins Davids Kelly, sem framdi sjálfsvíg eftir að upp komst að hann var heimildarmaður bresku fréttastofunnar BBC, þar sem stjórn Blairs var sökuð um að krydda og ýkja upplýsingar frá leyniþjónustunni til að réttlæta innrás í Írak.



Rannsóknin leiddi í ljós að Campbell hafði ekki gerst sekur um neitt misjafnt í tengslum við lát Kellys, en hann sagði engu að síður af sér og segir nú að þessi tími hafi verið sá versti í lífi sínu: „Ég var þátttakandi í atburðarás sem varð til þess að maður tók þá ákvörðun að svipta sig lífi,“ sagði Campbell í viðtali við BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×